26.11.08

Segið svo að Icesave hafi ekki gert góða hluti...



Hehehhee....

2.11.08

Skaupið 2004

Áðan horfið ég á áramótaskaupið 2004 á RÚV. Ég mundi ekki eftir neinu í því skaupi sem er mjög merkilegt því ég er 102% viss um að hafa horft á það á Baugholti 8 áramótin 04/05.

16.10.08

CODIII

Hollywood-stjörnur hafa oft gaman af því að dunda sér í tónlist svona við og við. Keanu Reeves er í bandinu DogStar, Jared Leto syngur í einhverri "óégásvobágtætlaaðskeramigþvíalltersvoömurlegt" emo sveit, Bruce Willis blúsar, Kevin Bacon er í bandi með algjörlega hæfileikalausum bróður sínum og Russell Crowe er í 30 odd foot of grunts.

Eina metalbandið sem ég hef geta fundið með kvikmyndastjörnu innanborðs er hljómsveitin Wicked Wisdom en í henni syngur Jada Pinkett Smith af öllum. Það er dálítið spes þar sem maður hefði gert ráð fyrir því að hún væri í einhverju RnB dæmi (út af kallinum, þið sjáið). Veit ekki með gæðin en framtakið er lofsvert.



Mikið að gerast þessa dagana. Milliríkjadeilur, kreppa, blaðamannafundir, kvef, óvissuástand og margt fleira. Skammdegið er samt alltaf voðalega notalegt sem er huggun harmi gegn.


_____________________________
Skammdegis-haiku:

Köstum í gólf,
mönnum í hertum göllum,
líkami og sál.

5.5.08

Sumt er skemmtilegra en annað...

... og þetta er hluti af sumu. Birna sýndi mér þetta áðan og mér finnst þessi gaur, Rick Miller, frábær.

3.5.08

Þórir kemur með sterkt þema fyrir næstu vonduljóðakeppni.

Það þema er Dolph Lundgren
. Fjórir dagar í skil og Þórir dæmir í keppninni.

30.4.08

Hressleiki

Svíar hafa alltaf verið miklir stuðboltar og standa iðulega fyrir sínu. Með gleði sinni og hressleika hefur sænska sveitin In Flames, sem spilar víst melódískt dauðarokk, kætt mig mikið í Gítar Híró. Eitthvað hafa þeir samt klikkað á sænskunni því þeir eru með augnbrúnir og allt.


Úrslit í vonduljóðakeppni.



Eftirfarandi ljóð bárust:

Nafnlaus Einar said...

Þveiti
vellur,
amoniaksfnykur.
Gellur í flösku
lekur um strá.
Engist um af ótta
gumi graftarballar.
Giska á um 240ml
um klóakið mun fara.
Rautt lekur með...

26.4.2008 23:26:00

Nafnlaus birna said...

Kirtillinn risastór,
kemur ekkert piss,
þó hann þambi bjór.
Aðgerð. Bara diss!

En kom æxlið aftur á legg
Ekki er það Krists álegg
Verður á fá þvaglegg

Finasteride
Ekkert 5betadihydrotestósterón
Minni kall
Minni skall-i
Bara testósterón.

Fæ loksins að una
Ó þú pissubuna

26.4.2008 23:45:00

Nafnlaus Jóhann said...

Ég ætlaði að semja ljóð
yndisgóðan ástaróð
semja mörg og flestöll góð
en svo mundi ég ekki
eftir fleiri orðum
sem enda á -óð
sennilega er best
að ég þvagleggi mig bara
og reyni aftur á morgun

27.4.2008 00:54:00

Blogger Þórir Hrafn said...

gemsinn vælir,
hljóðið talar,
vatnið sýður,
kaffið malar,
maginn með ólæti,
þvagleggur nærri,
gas, ekki yfir götuna !

27.4.2008 10:57:00


Það sem dómari keppninnar hafði að segja var:

Jæja, þá er komið að úrslitastundu! Ég ætla að kommenta á öll ljóðin og útfrá því velja sigurvegarann.

Einar: Mjög flott útfærsla á þvagleggnum, verst að ég fattaði það ekki strax. Svona er maður tregur.

Birna: Mjög öflugt innlegg (álegg þvaglegg). Kannski er málið að næst þurfi ljóðin að innihalda orðið 5betadihydrotestósterón. :)

Jóhann: Hljóð, rjóð, sjóð, þjóð, lóð, flóð, glóð, hlóð, slóð, fróð. Vonandi var gott að þvagleggja sig. Ekki langar samt að prófa það.

Þórir: Þetta var uppáhalds ljóðið mitt útaf skemmtilegri vitnun í dægurmálin. :D Þannig að Þórir er sigurvegari vikunnar!

Skammdegið óskar Þóri til hamingju með afburða vont ljóð. Það fellur í hans hlut að ákveða þema og dæma í næstu keppni.

25.4.08

Þriðja umferð hafin

Þakkarræða magga:

OMG ég hélt ég myndi aldrei vinna! Ég vil þakka hinum sem voru tilnefndir, þið eruð hæfileikaríkt fólk þótt ykkur skorti þetta "magic ingredient" sem ljóðið mitt hafði augljóslega. (kúkahúmor)

Síðast en ekki síst vil ég þakka móður minni, án hennar stuðnings hefði ég aldrei náð svona langt. Takk mamma. And thank you Hollywood Foreign Press!


Jæja, fyrst ég er dómari þá má ég víst velja þema. Þemað að þessu sinni er að öll ljóðin þurfa að innihalda orðið "þvagleggur" í einhverri beygingarmynd! Góða skemmtun! Fresturinn er aftur þrír dagar, og fólk má koma með eins marga þvagleggi og það vill.

Önnur umferð, maggi vann



Eftirfarandi ljóð bárust í keppnina að þessu sinni:


Blogger Maggi said...

Þetta ljóð kallast.

Malbikið teygir sig
út fyrir sjóndeildarhringinn
eins og endalaus lakkrísrúlla.

Bílarnir aka yfir brúna,
undir brúna,
yfir brúna... kúkinn.

Bíltegundir.
Bíltegyfir.
Bílteg.

21.4.2008 20:40:00

Eyða
Blogger Þórir Hrafn said...

Audi Auðunn Akir Akrein
Brunar Benz Bráðum breitt
Vang Vólks vekur vöknuð
Volvo vogar vegum vötn

21.4.2008 20:55:00

Eyða

Blogger Erla Dürr said...

Bílategundir

Með vasa fulla af fé,
ég held ég fari
Niður til Ásu
og fái mér kaffi mokka latté með dass af sírópi

þar ég græt
þar ég syrgi
þau undarlegu úrslit
sem síðast voru

helvítis bíll
helvítis fíll

Guð hvað ég er fegin
að eiga bara vespu

21.4.2008 21:40:00

Eyða
Nafnlaus Telma said...

„Finndu ryþmann“

Audi Mazda Opel Benz
Honda Peugeot Volvo
Mitshubishi
Saab Bugatti
Lada Kia Daewoo

Lexus Lotus Subaru
Nissan Fiat Daihatsu

Hyundai Daimler Renault Musso Toyota og Isuzu

22.4.2008 00:22:00

Eyða
Blogger Hafdís said...

Ég sé Bjöllu
en keyri bara hjól
tek sko eftir öllu
úti er nú sól

Þá kom strætó
og keyrði á bíl
fólk fékk ó ó
en gerði svo díl

22.4.2008 08:01:00

Eyða
Nafnlaus Birna said...

Plompast áfram veginn
eins og fornaldar fíll.
Helst ekki réttum megin
fokking druslubíll.

Glansandi nýr úr kassa,
dansar bimminn bjartur.
Keyrir á tvöhundruð, líkist spassa
Birtist maður svartur.

22.4.2008 15:52:00

Eyða
Nafnlaus Birna aftur said...

Akandi námsmenn
á hvínandi kúpu.
Frítt í strætó.

Bensín er dýrt
Fólk ekki hýrt
Leysa orkuvandann?

22.4.2008 15:53:00

Eyða
Blogger Telma said...

Bíddu bíddu, má koma með tvö???

Konan lagði í fatlaðrastæði, rauða Aygoinum sínum
Konan lagði á gula óbrotna línu og líka fyrir framan brunahana
Konan lagði beint fyrir framan útidyrnar, beint í alfaraleið, því bíllinn hennar var úlpa

22.4.2008 21:41:00

Eyða
Nafnlaus Jóhann said...

Blá Ljónið
Flýr frá zebrahestunum
rauðeigðum og
bláeigðum
því það er með klærnar úti

23.4.2008 00:00:00



Blogger Erla Dürr said...

ég ei fæ góðan díl,
en reyni samt mannin espa
vill ekki selja mér bíl
og verður þetta þá bara vespa

23.4.2008 12:29:00

_______________________________

Úr vöndu var að ráða og hrjáði mig val- og frammistöðukvíði þangað til í morgun. Þá fór ég yfir þetta aftur og ákvað að MAGNÚS SVEINN JÓNSSON myndi standa eftir með pálmann í höndunum. Það þýðir að maggi dæmir næstu keppni og kemur með þema.

21.4.08

FYRSTU UMFERÐ VONDULJÓÐAKEPPNINNAR LOKIÐ!




Ljóðin sem bárust voru eftirfarandi:
_______________
Ég

Gellur í myrkri sálar sem
hyldýpisins relluroði.
Mér er um mál að breyta,
að mér sækir þreyta,
ónotum að hreyta.
Fyrir verða fagrar sálir,
eins og grænir þrestir.
_______________
Jóhann Már

Á vorin koma próf með sama svekkinu
sveima flugnahópar enn á ný
náist menn með naglana í dekkinu
næpuhvítum svimar sekt við því
_______________
Telma

Það birtir og daginn lengja tekur
kaupa þarf myrkvunargluggatjöld
um fiðring og drykkju landinn gerist sekur
gleyma að nota getnaðarvörn
búa til ófá febrúarbörn
en þangað til það fattast hefur gleðin öll völd
_______________
Þórir Hrafn með ljóð sitt "Dauðarokk"

gnnrr gral gurrl gnar gurl
gurl gurl grol grol gnarl
gnuurrlll gnar grillll
guurrr guuur gnarr groll gruuuu
gruuuuuuu
gruuuuuuuuuuuu !!!!
_______________
Erla systir

Á Akureyri í mikilli sól
Er ég að reyna að lesa um hjólastóla fatlafól
Og með viskunni fenginni
Hefur hefur bara aukist þetta sokkaskúffu einkenni
_______________

Dómarinn hafði þetta að segja um ljóðin sem bárust:

"Eigandi bloggsins sigrar keppnina fyrir nánast óskiljanlegt, kjánahrolls-djúpt og skelfilega emo myndmál. ...og hvað er þetta með grænu þrestina? :D Bara súrt.

Jóhann og Telma fá bravó fyrir fínustu ljóð, þau voru þó nokkuð vel samin fyrir þessa keppni.

Erla fær hrós fyrir að vera með allt of mörg atkvæði í línu 2 og 4.

Þórir fær auk þess sérstakt hrós fyrir mjög einlægt og tilfinningaríkt ljóð. Þetta var eina ljóðið sem ég hreinlega heyrði höfundinn flytja ljóðið í höfðinu meðan ég las það!

Þetta var frábært ránd! Vonandi verður þátttakan jafn góð í því næsta."



Það er náttúrulega frábært að vera bestur í að vera verstur. Þar sem ég stend uppi sem sigurvegari kemur í minn hlut að dæma næstu keppni og ákveða huggetnað ljóðanna. Ljóðin eiga að fjalla um bíltegundir. Skáldin útfæri eftir þörfum. Látum þetta round standa í 3 daga.

18.4.08

Huggetnaðskeppni - vond ljóð




Þar sem það er að koma vor ætla ég að hrinda af stað vonduljóðakeppni. Keppnin er voðalega einföld, hún stendur í 4 daga og sá sem á versta ljóðið vinnur. Birna mun taka að sér að vera dómari fyrstu keppnina og eftir það mun sigurvegari síðustu keppni dæma næstu.

Vonandi verður einhver þáttaka. Sýnist ég vera búinn að bíta af mér þá fáu sem fylgdust með þessari síðu

__________________________________
Vont-ljóð

Gellur í myrkri sálar sem
hyldýpisins relluroði.
Mér er um mál að breyta,
að mér sækir þreyta,
ónotum að hreyta.
Fyrir verða fagrar sálir,
eins og grænir þrestir.


p.s. Þar sem ég var eitthvað að grauta í leiátinu á síðunni týndi ég öllum commentunum. Er þá ekki málið að reyna að bæta það upp?

15.2.08

Lesið bækur.

Og við segjum það með söng:

25.12.07

Gleðileg jól öllslömul.

Gleðileg jól og farsælt komandi ár.

Hér er smá jólaglaðningur frá mér því hvað er jólalegra en Hobbitar? Spock að syngja um Bilbo Baggins.

19.12.07

Að leggja gólflista er svakalega leiðinlegt...

... sér í lagi þegar þú stútar þriðja hverjum nagla og restin beyglast. Ekki það skemmtilegasta sem ég hef gert. Hins vegar sé ég fram á að klára þessa parketlagningu á morgun og það er vel.

28

Looking for payday loan?



Mér hefði alveg veitt af því að slást við þessa krakka í kvöld þegar ég var að berja í puttana á mér.

14.12.07

Orginal Futurama lagið.



Frakkinn Pierre Henry (frumlegt nafn) gaf þetta lag, Psyché Rock, út 1967. Varð víst áttræður í vikunni sem leið.